Greiðslur úr sjúkrasjóði um 119 milljónir - punktar frá aðalfundi

Á síðasta ári greiddi félagið út tæplega 119,3 milljón króna úr sjúkrasjóði til félagsmanna. Árið 2014 var upphæðin rúmlega 112,1 milljónir.

Dagpeningagreiðslur vega mest í upphæðinni en á síðasta ári fengu félagsmenn greidda tæplega 94,7 milljón króna í dagpeninga miðað við 84,1 milljónir árið 2014. Dagpeningagreiðslur geta verið vegna eigin veikinda, mjög alvarlega veikinda maka eða langveikra og/eða alvarlegra fatlaðra barna.

Aðrar greiðslur úr sjúkrasjóði námu alls tæplega 23 milljónum kr. miðað við rúmlega 28 milljónir kr. árið 2014. Þarna má m.a. nefna greiðslur vegna líkamsræktar, sjúkraþjálfunar og sjúkranudds, viðtöl við sálfræðinga og geðlækna, gleraugnaglerja, heyrnartækja, krabbameinsleitar o.fl.