Greiðslur úr Félagsmannasjóði SGS

Félagsmenn aðildarfélaga SGS sem starfa hjá sveitarfélögum, þar á meðal Einingar-Iðju,  fá í samræmi við síðustu kjarasamninga greitt 1,5% af launum sínum í Félagsmannasjóð SGS.

Greitt var úr sjóðnum í fyrsta sinn 1. febrúar sl. og hafa nú verið greiddar rúmar 218 milljónir króna til tæplega 5.000 félagsmanna.

Allir félagsmenn sem starfa hjá sveitarfélagi eða störfuðu hjá sveitarfélagi á félagssvæðinu á tímabilinu frá 1. febrúar 2020 til 31. desember 2020 áttu að fá greitt úr félagsmannasjóði 1. febrúar sl. 

Félagsmönnum aðildarfélaga SGS, sem starfa hjá sveitarfélögum, og ekki hafa fengið greitt úr sjóðnum er bent á að fylla út þetta form.

Greitt verður úr sjóðnum með reglubundnum hætti næstu mánuði.