Greiðslur úr félagsmannasjóði

Vert er að minna aftur á þetta fyrir þá félagsmenn sem enn eiga eftir að skila inn umbeðnum upplýsingum. Félagsmenn Einingar-Iðju sem starfa hjá eða hættu störfum hjá sveitarfélögum á síðasta ári, ATHUGIÐ!

Allir félagsmenn sem starfa hjá sveitarfélagi eða störfuðu hjá sveitarfélagi á félagssvæðinu á tímabilinu frá 1. febrúar 2020 til 31. desember 2020 áttu að fá greitt úr félagsmannasjóði 1. febrúar sl. Þar sem einhverjir eiga enn eftir að skila inn upplýsingum hafa þeir tíma til þess núna því aftur verður greitt úr sjóðnum 1. mars nk. 

Forsenda þess að hægt verði að greiða úr sjóðnum er að Eining-Iðja hafi kennitölu, bankaupplýsingar, síma og netfang félagsmanna. Einfaldast er að fylla út þetta rafræna eyðublað

Einnig er hægt að hafa samband við Rut hjá Einingu-Iðju sem fyrst til að veita umbeðnar upplýsingar. Sími 460 3600 eða netfang rut@ein.is 

Trúnaðarmenn söfnuðu þessum upplýsingum saman frá félagsmönnum sem enn eru starfandi hjá sveitarfélagi.

Í síðasta kjarasamningi við sveitarfélögin var samið um og stofnaður sérstakur félagsmannasjóður. Atvinnurekandi greiðir mánaðarlegt framlag í sjóðinn sem nemur 1,5% af heildarlaunum félagsmanna og er greitt úr sjóðnum 1. febrúar ár hvert.