Í vikunni var haldið námskeið fyrir félagsmenn þar sem kennt var hvernig eigi að skreyta snittur og brauðtertur. Mikill áhugi var fyrir námskeiðinu og komust færri að en vildu. Námskeiðið fór fram á Amts kaffi Ilm á bókasafninu á Akureyri og var leiðbeinandi Þórhildur Þórhallsdóttir matreiðslumeistari.