Góður gangur í átakinu Við hækkum ekki! - myndband

Henný Hinz hagfræðingur hjá ASÍ og verkefnisstjóri átaksins Við hækkum ekki! segir viðbrögð einstaklinga og fyrirtækja vegna átaksins hafa verið vonum framar. Fjöldi ábendinga hefur borist og fjölmörg fyrirtæki hafa skráð sig á lista þeirra sem sýna samstöðu með launafólki og ætla ekki að hækka verð hjá sér.