Góður fundur um upplýsinga- og kynningarmál

Á fjórða tug aðila úr verkalýsðhreyfingunni sótti í gær fræðslufund sem ASÍ stóð fyrir um upplýsinga- og kynningarmál, þar á meðal Ásgrímur upplýsingafulltrúi félagsins. Fundurinn var einkum ætlaður því starfsfólki stéttarfélaganna sem sér um þennan málaflokk hjá sínum félögum. Snorri Már Skúlason, deildarstjóri upplýsinga- og kynningarmála hjá ASÍ, opnaði fundinn á stuttum inngangi áður en Sigurður Svansson, sérfræðingur í samfélagsmiðlum, fór yfir tækifærin í miðlun sem búa í Facebook. Hann rakti möguleika miðilsins auk þess að fara yfir 5 atriði varðandi samfélagsmiðla sem eru heit 2017.

Í seinni hluta fundarins fór Bogi Ágústsson, fyrrverandi fréttastjóri RÚV, yfir stöðu íslenska fjölmiðla, útbreiðslu þeirra, traust, almannaþjónustu, breytingar á fjölmiðlun, ógnanir, málsóknir vegna meintra meiðyrða og falskar fréttir. Hann ræddi einnig breytingar á fréttaöflun og dreifingu frétta og helstu vandamál sem við er að glíma í því efni. 

Góður rómur var gerður að erindum Sigurðar og Boga.