Góðir undirbúningsfundir

Í gær hélt félagið þrjá fundi fyrir trúnaðarmenn félagsins þar sem farið var yfir framkvæmd könnunar sem gerð verður á meðal félagsmanna í næstu viku varðandi hvað beri að leggja áherslu á við gerð næstu kjarasamninga. Könnunin verður framkvæmd á vinnustöðum af trúnaðarmönnum.

Ef trúnaðarmaður er ekki á vinnustaðnum þínum þá getur þú haft samband við skrifstofur félagsins.