Góðir gestir kíktu í heimsókn

Í morgun komu góðir gestir í heimsókn á skrifstofu félagsins á Akureyri. Þarna voru á ferð þingmennirnir, Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, Kristján Möller og Oddný Harðardóttir ásamt Loga Má Einarssyni, bæjarfulltrúa á Akureyri. Þau settust niður með Birni, formanni félagsins, og fengu að heyra hjá honum um starfið hjá Einingu-Iðju og einnig um komandi kjarasamningaviðræður.