Gengið þvert á samkomulag um VIRK

Stjórnvöld ganga þvert á gerða samninga með því að greiða ekki mótframlag sitt til VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs sagði Hannes G. Sigurðsson, stjórnarformaður VIRK í hádegisfréttum RÚV í gær.

Í frétt á heimasíðu sjóðsins segir að árið 2012 var bundið í lög að stjórnvöld greiddu þriðjungs framlag í VIRK Starfsendurhæfingarsjóð á móti lífeyrissjóðunum og aðilum vinnumarkaðarins. Í tengslum við fjárlagagerð í fyrra var hins vegar gert óformlegt samkomulag um að fresta framlagi ríkisins um eitt ár gegn því að það kæmi inn árið 2015. Samkvæmt fjárlögum sem nýlega voru kynnt ætlar ríkið hins vegar ekki að greiða þetta framlag, sem átti að nema rúmum 1300 milljónum króna.

Hannes segir þetta mjög misráðið hjá stjórnvöldum og greinilegt að skammtímasjónarmið ráði för. „Þeim er heimilt að breyta lögum. En það er ljóst að þarna er verið að ganga þvert á samkomulag sem hefur verið gert, og samninga á fyrri árum“ sagði hann og benti á að sparnaður sé fólginn í því að koma fólki aftur út á vinnumarkað. „Og er í raun mjög mikið hagsmunamál fyrir ríkissjóð að koma á kerfi sem stuðlar að því að fólk verði virkt á vinnumarkaði í stað þess að það verði lífeyrisþegar."

Sjá nánar frétt á virk.is