Gallup könnunin - starfsumhverfið

Undanfarin ár hefur Eining-Iðja fengið Gallup til að gera umfangsmiklar viðhorfs- og kjarakannanir meðal félagsmanna. Þessar kannanir eru sambærilegar könnunum sem nokkur önnur félög innan verkalýðshreyfingarinnar hafa látið gera. Nú liggja fyrir niðurstöður könnunar ársins 2020. 

Í könnuninni voru margir þættir kannaðir, m.a. var spurt um starfsumhverfið. 

  • 42,7% voru frá vinnu einn dag eða meira vegna eigin veikinda eða vinnuslyss á síðustu þremur mánuðum miðað við 43,2% í fyrra og 40% árið 2018.
  • 66% sögðu að vinnuálag sitt væri hæfilegt, 30,1 of mikið og 3,9% of lítið. Árið 2019 sögðu 57,6% að það væri hæfilegt, 38,1% að það væri of mikið og 4,3% að það væri of lítið.
  • 76,2% segja að samskipti á þeirra vinnustað séu opin og heiðarleg, en 11,8% voru ekki á þeirri skoðun. Í fyrra var niðurstaðan 74,4% og 13,3%.
  • 88,4% sögðust geta leitað til næsta yfirmanns ef viðkomandi þyrfti á því að halda, en 5,9% voru því ósammála. Í fyrra var niðurstaðan 87,3% og 6,3%.
  • 85,7% sögðu að öryggi þeirra væri tryggt í vinnunni, en 4,7% voru því ósammála. Í fyrra var niðurstaðan 79,3% og 7,4%. 

Niðurstöðurnar eru afar gagnlegar fyrir félagið því markmiðið er alltaf að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum félagsmanna, svo sem með því að semja um kaup og kjör og bættan aðbúnað við vinnu. Einnig þarf að gæta þess að áunnin réttindi séu virt. 

Stjórn félagins vill þakka öllum þeim sem þátt tóku í launakönnun félagsins í ár.