Gallup könnun félagsins - nöfn vinningshafa

Nýlega framkvæmdi Gallup könnun um ýmis atriði sem snerta kjör og aðstæður félagsmanna Einingar-Iðju og AFLs starfsgreinafélags. Könnunin var líka happdrættismiði því allir sem tóku þátt gátu unnið veglega vinninga. Í bréfinu sem þátttakendur fengu var lukkunúmer. Búið er að draga og voru nöfn eftirfarandi félagsmanna Einingar-Iðju dregin út. 

  • Tveir vinningar að upphæð kr. 150.000, eitt stk. á hvort félag: Steingerður Berglind Kristjánsdóttir.
  • Tveir vinningar að upphæð kr. 50.000, eitt stk. á hvort félag: Ástþór Gíslason.
  • Fjórir vinningar, vikudvöl í orlofsíbúðum félaganna. Tvö stk. á hvort félag: Agnar Leifur Dagmann Björnsson og Margrét Dóra Eðvarðsdóttir

Í ár lentu einnig 20 þátttakendur strax í happdrættispotti, 10 frá hvoru félagi, voru í raun dregnir út áður en þeir svöruðu. Hinir heppnu vinningshafar fengu tilkynningu um það um leið og þeir höfðu lokið við að svara könnuninni, um var að ræða kr. 15.000 inneign á debetkorti sem þeir nálguðust á skrifstofu félagsins á Akureyri. Í ár, eins og í fyrra, tóku allir tíu þátt þannig að allir vinningarnir gengu út, ólíkt síðustu árum. T.d. árið 2019 þá svöruðu aðeins sjö þeirra sem dregin voru út sem þýddi því miður að þrír félagsmenn Einingar-Iðju misstu af því að fá vinning upp á kr. 15.000 og sex árið 2018. Það getur borgað sig að taka þátt!

Eining-Iðja óskar vinningshöfum til hamingju og þakkar þeim fjölmörgu sem gáfu sér tíma til að taka þátt.