Fyrstu skrefin á vinnumarkaði

Um þessar mundir stendur Starfsgreinasamband Íslands fyrir kynningarátaki í þeim tilgangi að vekja unga einstaklinga, sem margir hverjir eru að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaðnum í sumar, til umhugsunar um réttindi sín á vinnumarkaði.

Sambandið hefur tekið saman nokkra mikilvæga punkta sem borgar sig að hafa á hreinu þegar fyrstu skrefin eru tekin.

Undanfarið hefur SGS lagt áherslu á að vekja athygli á ákveðnum málum í hverjum mánuði. Meðal annara málefna sem eru og hafa verið á dagskrá má nefna orlofsrétt, erlent starfsfólk, fyrstu skrefin á vinnumarkaði, veikindarétt, ungt fólk og verkalýðshreyfinguna, afleiðingar svartrar vinnu, lífeyrisréttindi og margt fleira.

Hér á síðu SGS er hægt að nálgast viðkomandi kynningarefni fyrir hvert málefni/mánuð fyrir sig.