Fyrsti fundur nýrrar miðstjórnar ASÍ í gær

Mynd af vef ASÍ
Mynd af vef ASÍ

Ný miðstjórn ASÍ hélt sinn fyrsta fund í gær, en í henni á m.a. sæti Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju. Á fundinum var farið yfir málefni þings ASÍ sem haldið var í lok október, kjaraviðræðurnar framundan, samskiptin við stjórnvöld og innri málefni. Þá skipti miðstjórnin með sér verkum en vaninn er að miðstjórnarmenn fari með formennsku í málefnanefndum sambandsins.