Fundur með Vinnueftirlitinu vegna vinnustaðaeftirlits

Fulltrúar Alþýðusambands Íslands áttu fund með Vinnueftirlitinu síðastliðinn föstudag til að ræða samstarf og upplýsingamiðlun á milli ASÍ og Vinnueftirlitisins vegna eftirlits með starfsaðstæðum erlends starfsfólks.

Á fundinum kynntu fulltrúar Vinnueftirlitsins eftirlit stofnunarinnar með erlendu starfsfólki í mannvirkjagerð, fjölluðu um verkkaupaábyrgð, eftirlitsheimildir, þá þætti sem einna helst eru í ólagi á byggingarvinnustöðum sem og tegundir brota á erlendu starfsfólki. Þá ræddu fundarmenn einnig um grundvöll fyrir auknu samtarfi og upplýsingarmiðlun milli Vinnueftirlitsins og ASÍ/stéttarfélaganna.