Fundur í Hofi: Samstaða og kraftur meðal félagsmanna

Nú stendur yfir í Hofi á Akureyri fundur hjá Einingu-Iðju þar sem rúmlega 100 félagsmenn fara yfir ýmis mál varðandi kjaraviðræður sem framundan eru. Um er að ræða sjöunda fundinn sem félagið hefur staðið fyrir á öllu félagssvæðinu í vikunni. Fyrstu fundirnir sex voru haldnir á Akureyri, Grenivík, Hrísey, Ólafsfirði, Dalvík og Siglufirði og voru opnir öllum félagsmönnum. Þessir fundir eru m.a. tækifæri fyrir alla félagsmenn til að koma fram með hugmyndir að launakröfum félagsins í kröfugerð sem send verður til samninganefndar Starfsgreinafélagsins í næstu viku.

Fundurinn í dag er með svokölluðu þjóðfundarfyrirkomulagi, en með því fyrirkomulagi ná vonandi sem flest sjónarmið að koma fram, enda um að ræða afkomu almenns launafólks næstu misserin. Á fundinn voru boðaðir félagsmenn sem sitja í samninganefnd félagsins, trúnaðarráði auk trúnaðarmanna sem ekki sitja í þessum nefndum. Í byrjun fundar kynnti Sigríður Ólafsdóttir frá Capacent niðurstöður kjarakönnunar sem gerð var fyrir félagið. Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur hjá ASÍ, var að ljúka við að fara yfir laun og launaþróun í aðdraganda kjarasamninga. Eftir hádegi verður unnið í hópum þar sem rætt verður út frá sömu spurningum og lagðar voru fyrir á fundunum sex búið var að halda í vikunni, m.a um launahækkanir og lengd samnings. Eyrún Björk Valsdóttir, deildarstjóri fræðsludeildar ASÍ, skipulagði vinnuna og mun hafa yfirumsjón með henni.

Samstaða er númer eitt, tvö og þrjú
Björn Snæbjörnsson, formaður félagsins og SGS, segist vera mjög ánægður með þá mætingu sem félagið hefur fengið á fundina. „Við sem erum í forystu verkalýðshreyfingarinnar höfum að sjálfsögðu sjónarmið félagsmanna alltaf að leiðarljósi í kjaraviðræðunum. Þess vegna boðaði Eining-Iðja til þessara sjö funda í vikunni til að baklandið, það er okkar félagsmenn, kæmu fram með sín sjónarmið. Við höfum fengið mjög góða mætingu á fundina sem hafa einkennst af mikilli samstöðu og krafti. Í könnum sem gerð var fyrir okkur nýlega kom í ljós að 65 % félagsmanna Einingar-Iðju styðja hugsanlegar verkfallaaðgerðir, þurfi á annað borð að grípa til þess ráðs. Miðað við þessa fundi okkar þá er sú tala einungis orðin mun hærri. Þetta veitir manni aukinn kraft til að fara í þá vinnu sem framundan er því samstaða er númer eitt, tvö og þrjú. Formaður stéttarfélags sem hefur ekki nógu sterkt bakland, er einskis virði í slíkum viðræðum,“ segir Björn Snæbjörnsson.