Fundur fólksins - við mætum, mætir þú?

Lýðræðis- og stjórnmálahátíðin Fundur Fólksins fer fram dagana 8. og 9. september í Hofi á Akureyri. Á hátíðinni munu hin ýmsu félagasamtök, stjórnmálaflokkar og stofnanir vera með starfsemi og í bland við líflegar umræður, tónlistaratriði og uppákomur. Hátíðinni er ætlað að virkja lýðræðisþátttöku almennings, vera vettvangur allra þeirra sem vilja ræða málefni samfélagsins og skapa meira traust og skilning milli ólíkra aðila samfélagsins án þess að vera föst í venjubundnum umræðufarvegi stjórnmála eða fjölmiðla.

Eining-Iðja, ásamt FVSA, Samiðn, RSÍ, ASÍ og SGS, mun taka virkan þátt í hátíðinni.  Félögin verða með kynningar á sinni starfsemi báða dagana og munu auk þess standa fyrir sófaspjalli með Sögu Garðarsdóttur á föstudeginum og málþingi um ungt fólk á laugardeginum undir yfirskriftinni „Af hverju borga ég í stéttarfélag?“.  Einnig verður í gangi getraunaleikur á kynningarsvæði félaganna með veglegum vinningumi. 

Frekari upplýsingar um hátíðina, m.a. dagskrána í heild, má nálgast á vefsíðu Fundar fólksins.

Viðburðir á Facebook:
Sófaspjall
Málþing

Allir eru velkomnir á Fund fólksins, ókeypis inn. Eining-Iðja hvetur sem flesta til að líta við í Hofi um helgina og taka þátt í þessari líflegu hátíð sem fram fer í fyrsta sinn á Akureyri!