Fundur fólksins

Vert er að benda þeim sem áhuga hafa á samfélagsmálum og verða í Reykjavík eða nágrenni um næstu helgi að dagana 11. til 13. júní nk. stendur yfir hátið sem ber nafnið Fundur fólksins

Fundur fólksins er lífleg þriggja daga hátíð um samfélagsmál í Norræna húsinu og næsta nágrenni þess dagana 11. til 13. júní. Slegið verður upp tjaldbúðum og skemmtilegir kofar setja svip á hátíðarsvæðið. Þar munu hin ýmsu félagasamtök vera með starfsemi alla hátíðina. Í bland við líflegar umræður verða tónlistaratriði. Boðið er til samtals milli almennings, stjórnmálamanna og frjálsra félagasamtaka, þar sem opin skoðanaskipti verða leiðarstef. Á dagskránni verða fundir, málþing, fyrirlestrar, tónlistaratriði og líflegar uppákomur frá morgni til kvölds, bæði innan og utandyra.

Kynningarbás verkalýðshreyfingarinnar
Í einum af kynninarbásunum á útisvæði hátíðarinnar munu fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar standa vaktina alla þrjá dagana og kynna starfsemi hreyfingarinnar og vera til viðtals við gesti og gangandi. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Verkalýðsbaráttan og stjórnmálin í tónlist, máli og myndum.
Á laugardeginum milli kl. 14:00 og  16:00 munu ASÍ og SGS standa fyrir málþingi í hátíðarsal Norræna hússins þar sem boðið verður upp framsögur og pallborðsumræður milli  fulltrúa verkalýðshreyfingarinnar og stjórnmálaflokka. Auk þess verður boðið upp á tónlistaratriði og myndasýningu.

Sjá nánar um hátíðina hér