Fundur á Siglufirði í gær

Í gær hélt félagið almennan félagsfund á Siglufirði þar sem m.a. fór fram kosning á svæðisfulltrúa og varamanni hans. Margrét Jónsdóttir mun áfram gegna embætti svæðisfulltrúa félagsins og Sigrún Agnarsdóttir verður áfram varasvæðisfulltrúi. Svæðisfulltrúi situr í stjórn Einingar-Iðju og varamaður er sjálfkjörinn í trúnaðarráð félagsins. 

Fínar umræður urðu á fundinum að lokinni kosningu á svæðisfulltrúa.