Fundur á Grenivík í kvöld

Í kvöld kl. 20:00 verður haldinn fundur á Grenivík þar sem m.a. mun fara fram kosning á svæðisfulltrúa félagsins og varamanni hans. Einnig verður fjallað um Virk og vinnustaðaeftirlit félagsins. Fundirnir verða túlkaðir á pólsku. Félagar, fjölmennum!

  •  Miðvikudagur 1. mars
    • Grenivík: Á veitingastaðnum Kontórnum kl. 20:00 

Dagskrá:

  1. Kosning á svæðisfulltrúa og varamanni.
  2. Hvað er VIRK?
  3. Vinnustaðaeftirlit félagsins
  4. Önnur mál.