Fundur á Akureyri í gær - Grenivík í dag

Í gær hélt félagið almennan félagsfund á Akureyri, en alls verða fundirnir fimm í vikunni. Næsti fundur er á Grenivík í dag kl. 17:00. Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, fór yfir stöðu kjaramála, sérstaklega ræddi hann um stöðu samninga við SA. Hann fór einnig yfir nýlega viðhorfs- og kjarakönnun sem Gallup framkvæmdi fyrir félagið. Fínar umræður urðu um þessa liði. 

Næsti fundur

Í dag heldur félagið einn almennan félagsfund á svæðinu á Grenivík kl. 17:00. Félagar, fjölmennum!

  •  Fimmtudagur 21. janúar 
    • Grenivík: Gamli barnaskólinn kl. 17:00 

Dagskrá:

  1. Kjaramál - sérstaklega verður rætt um um stöðu samninga við SA
  2. Könnun félagsins - helstu niðurstöður 
  3. Önnur mál.