Fundir með trúnaðarmönnum sveitarfélaga og ríkis

Hér má sjá nokkra trúnaðarmenn Einingar-Iðju sem starfa á sambýlum á fundi í sal félagsins á Akureyr…
Hér má sjá nokkra trúnaðarmenn Einingar-Iðju sem starfa á sambýlum á fundi í sal félagsins á Akureyri fyrr í dag.

Í dag heldur félagið tvo fundi með trúnaðarmönnum félagsins sem vinna hjá sveitarfélögunum, en búið er að skipuleggja nokkra fundi með þeim á næstunni og einnig með trúnaðarmönnum sem starfa hjá ríkinu.

Í morgun voru það trúnaðarmenn sem starfa á sambýlum en núna stendur yfir fundur með trúnaðarmönnun í grunnskólum.

Góðar umræður urðu á fundinum í morgun, sem fram fór í sal félagsins á Akureyri. Á þessum fundum er aðallega verið að fara yfir  vinnutímastyttinguna, t.d. hvernig til tókst og farið yfir ýmsar útfærslur á henni.