Fundað með starfsmönnum O Jakobsson ehf.

Tveir starfsmenn félagsins ásamt pólskum túlki og starfsmönnum Vinnumálastofnunar funduðu með starfsmönnum fyrirtækisins O Jakobsson ehf. á Dalvík í morgun. Hjá fyrirtækinu starfa um 20 manns, en síðastliðinn miðvikudag var óskað eftir því að fyrirtækið yrði tekið til gjaldþrotaskipta. M.a. var farið yfir réttindi starfsmanna varðandi þá stöðu sem uppi er og kröfur úr ábyrgðarsjóði launa.