Fundað í Fjallabyggð í gær

Í gær héldu Eining-Iðja og FVSA sameiginlegan kynningarfund á nýjum samningum félaganna við Samtök atvinnulífsins í Fjallabyggð. Mæting á fundinn var þokkaleg, en á honum kynnti Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, nýjan kjarasamning milli SGS og SA sem skrifað var undir þann 21. desember sl. Með honum í för voru Anna varaformaður og Ásgrímur upplýsingafulltrúi félagsins. Frá FVSA mættu formaður og varaformaður félagsins, Úlfhildur Rögnvaldsdóttir og Eiður Stefánsson.