Fulltrúakjör á þing SGS og AN

Frá fundi kvöldsins
Frá fundi kvöldsins

Nú stendur yfir trúnaðarráðsfundur hjá Einingu-Iðju og var nú rétt í þessu samþykkt tillaga að lista stjórnar- og trúnaðarráðs um fulltrúa félagsins á þing SGS og á Þing Alþýðusambands Norðurlands sem fram fara í september og október. Einnig var samþykkt tillaga að skilafrest lista og er hún eftirfarandi:

Fulltrúakjör

Samkvæmt lögum Einingar-Iðju fara kosningar fulltrúa félagsins á 6. þing Starfsgreinasambands Íslands og 35. þing Alþýðusambands Norðurlands fram að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu í samræmi við reglugerð ASÍ um slíkar kosningar. 

Á 6. þing Starfsgreinasambands Íslands, sem haldið verður á Selfossi dagana 11.og 12. október nk., hefur félagið rétt á að senda 11 fulltrúa. 

35. þing Alþýðusambands Norðurlands verður haldið á Illugastöðum dagana 29. og 30. september nk. Félagið hefur rétt á að senda 47 fulltrúa á þingið. 

Framboðslistum eða tillögum til 6. þings SGS og 35. þings AN þar sem tilgreind eru nöfn aðalfulltrúa í samræmi við framanskráð og jafn margra til vara, ber að skila á skrifstofu félagsins Skipagötu 14 Akureyri eigi síðar en kl. 12:00 á hádegi mánudagsins 18. september nk. 

Hverjum framboðslista skulu fylgja meðmæli 100 fullgildra félagsmanna. 

Akureyri 7. september 2017.

Stjórn Einingar-Iðju