Fulltrúakjör á þing ASÍ

Frá fundi kvöldsins
Frá fundi kvöldsins

Nú stendur yfir trúnaðarráðsfundur hjá Einingu-Iðju og var nú rétt í þessu samþykkt tillaga að lista stjórnar- og trúnaðarráðs um fulltrúa félagsins á þing ASÍ sem fram fer í október. Einnig var samþykkt tillaga að skilafrest lista og er hún eftirfarandi:

Fulltrúakjör

Samkvæmt lögum Einingar-Iðju fara kosningar fulltrúa félagsins á 43. þing Alþýðusambands Íslands fram að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu í samræmi við reglugerð ASÍ um slíkar kosningar.

Félagið hefur rétt til að senda 9 fulltrúa á þing Alþýðusambands Íslands, sem haldið verður í Reykjavík dagana 24.til 26.október nk.

Framboðslistum eða tillögum til þings ASÍ, þar sem tilgreind eru nöfn aðalfulltrúa í samræmi við framanskráð og jafn margra til vara, ber að skila á skrifstofu félagsins Skipagötu 14 Akureyri eigi síðar en kl. 12:00 á hádegi fimmtudagsins 27. september nk.

Hverjum framboðslista skulu fylgja meðmæli 80 fullgildra félagsmanna.

Akureyri 18. september 2018

Stjórn Einingar-Iðju