Fulltrúakjör á þing ASÍ

Nú stendur yfir trúnaðarráðsfundur hjá Einingu-Iðju og var nú rétt í þessu samþykkt tillaga að lista stjórnar- og trúnaðarráðs um fulltrúa félagsins á þing ASÍ sem fram fer í Reykjavík dagana 17. til 19. október nk. Einnig var samþykkt tillaga að skilafrest lista og er hún eftirfarandi:

Fulltrúakjör
Samkvæmt lögum Einingar-Iðju fara kosningar fulltrúa félagsins á þing Alþýðusambands Íslands, fram að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu í samræmi við reglugerð ASÍ um slíkar kosningar. 

Félagið hefur rétt til að senda 10 fulltrúa á þing Alþýðusambands Íslands, sem haldið verður í Reykjavík dagana 17. til 19. október nk. 

Framboðslistum eða tillögum til þings ASÍ, þar sem tilgreind eru nöfn aðalfulltrúa í samræmi við framanskráð og jafn margra til vara, ber að skila á skrifstofu félagsins Skipagötu 14 Akureyri eigi síðar en kl. 12:00 á hádegi föstudagsins 28. september nk. 

Hverjum framboðslista skulu fylgja meðmæli 80 fullgildra félagsmanna. 

Akureyri 19. september 2012.
Stjórn Einingar-Iðju