Fulltrúakjör

Samkvæmt lögum Einingar-Iðju fara kosningar fulltrúa félagsins á 42. þing Alþýðusambands Íslands fram að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu í samræmi við reglugerð ASÍ um slíkar kosningar.

Félagið hefur rétt til að senda 11 fulltrúa á þing Alþýðusambands Íslands, sem haldið verður í Reykjavík dagana 26.til 28.október nk.

Framboðslistum eða tillögum til þings ASÍ, þar sem tilgreind eru nöfn aðalfulltrúa í samræmi við framanskráð og jafn margra til vara, ber að skila á skrifstofu félagsins Skipagötu 14 Akureyri eigi síðar en kl. 12:00 á hádegi fimmtudagsins 22. september nk.

Hverjum framboðslista skulu fylgja meðmæli 80 fullgildra félagsmanna.

Akureyri 12. september 2016

Stjórn Einingar-Iðju