Fulltrúakjör

Samkvæmt lögum Einingar-Iðju fara kosningar fulltrúa félagsins á þing Alþýðusambands Íslands, fram að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu í samræmi við reglugerð ASÍ um slíkar kosningar.

Félagið hefur rétt til að senda 11 fulltrúa á þing Alþýðusambands Íslands, sem haldið verður í Reykjavík dagana 22. til 24. október nk.

Framboðslistum eða tillögum til þings ASÍ, þar sem tilgreind eru nöfn aðalfulltrúa í samræmi við framanskráð og jafn margra til vara, ber að skila á skrifstofu félagsins Skipagötu 14 Akureyri eigi síðar en kl. 12:00 á hádegi mánudagsins 15. september nk.

Hverjum framboðslista skulu fylgja meðmæli 80 fullgildra félagsmanna.

Akureyri 4. september 2014.
Stjórn Einingar-Iðju