Fullt í leikhúsferð fyrir lífeyrisþega félagsins

Mynd úr leikhúsferðinni 2018
Mynd úr leikhúsferðinni 2018

Fullt er orðið í leikhúsferð fyrir lífeyrisþega félagsins sem auglýst var í síðustu viku. Á hverju ári býður félagið lífeyrisþegum í leikhús en í ár verður farið á leikritið Brúðkaup sem Leikdeild Ungmennafélagsins Eflingar í Reykjadal sýnir í Breiðamýri. Um er að ræða gamanleikrit með söngvum og gríni. Sýningin verður laugardaginn 16. mars nk.