Frístundakortin - pantið með góðum fyrirvara

Sumarið 2021 býður Eining-Iðja félagsmönnum enn og aftur upp á að kaupa Útilegukortið og Veiðikortið á sérkjörum. Með því að kaupa kort hjá félaginu geta félagsmenn því sparað verulega. Kaupa þarf kortin í gegnum Orlofshúsavefinn, þá sendist pöntun til viðkomandi söluaðila sem senda kortin til félagsmanna. Kortin verða EKKI til sölu á skrifstofum félagsins.

Athugið að gott er að panta með góðum fyrirvara. Það getur tekið allt að viku, jafnvel rúmlega það, að fá kort með póstinum. 

Félagsmenn geta einnig keypt ferðaávísun á orlofsvefnum sem tryggir bestu kjörin á gistingu á hótelum og gistiheimilum um allt land. 

Sjá nánar hér