Freydís að hætta

Anna, Íris, Freydís og Sigrún
Anna, Íris, Freydís og Sigrún

Í dag er síðasti starfsdagur Freydísar Antonsdóttur, en hún hefur starfað sem þjónustufulltrúi á skrifstofu félagsins á Dalvík frá því í maí 2008. Anna varaformaður, Sigrún skrifstofustjóri og Ásgrímur upplýsingafulltrúi fóru í morgun til Dalvíkur, færðu Freydísi blómvönd og þökkuðu henni gott samstarf.

Nýr opnunartími
Framvegis verður opið alla virka daga frá kl. 10 til 16 á skrifstofunni á Dalvík. Íris Hauksdóttir hóf störf í byrjun vikunnar og mun hún taka á móti félagsmönnum sem koma á skrifstofuna. Netfangið hennar er iris@ein.is