Fréttatilkynning frá Starfsgreinasambandi Íslands

Innan raða Starfsgreinasambands Íslands (SGS) eru 19 stéttarfélög rúmlega 57 þúsund félagsmanna um land allt. Samninganefndir hvers félags um sig fara með samningsumboð fyrir hönd sinna félagsmanna en hafa oft falið sameiginlegri samninganefnd SGS að fara með umboðið. 

Ef einstök félög meta það svo að það sé skynsamlegra vegna aðstæðna hjá þeim að hafa umboðið hjá sér og eiga viðræður beint við atvinnurekendur þá geta þau að sjálfsögðu gert það hvenær sem er. SGS mun halda viðræðum áfram af krafti, í góðri samvinnu við öll félög innan sambandsins, í þeim tilgangi að ná fram réttmætum kröfum til að bæta hag sinna félagsmanna.