Framkvæmdir hafnar

Ekki er fundarhæft í salnum í dag
Ekki er fundarhæft í salnum í dag

Í gær hófust framkvæmdir við breytingar á skrifstofu Einingar-Iðju á Akureyri. Í byrjun nær framkvæmdasvæðið yfir sal félagsins, geymslur og salerni. Um áramótin verður svo öll skrifstofan orðin að vinnusvæði og því mun starfsemi félagsins færast þá upp í sal Lionsklúbbsins Hængs, sem er á 4. hæð Alþýðuhússins.

Framkvæmdum á að vera lokið í lok febrúar 2014.

Fyrr á árinu var tekin ákvörðun í stjórn félagsins um að ráðast í breytingar á skrifstofu Einingar-Iðju á Akureyri. M.a. verður skipt um gólf- og loftaefni, bætt við einni skrifstofu, geymslur sameinaðar, salur færður, snyrtingum í sameign breytt og móttakan gerð sýnilegri.