Framkvæmdir á Illugastöðum


Stjórn Orlofsbyggðarinnar á Illugastöðum ákvað fyrr á árinu að fara í framkvæmdir við að klæða húsin á svæðinu að utan með stálklæðningu. Jafnframt verður skipt um útihurðir og ýmislegt fleira lagað. Ákveðið var að byrja á efra svæðinu og er nú hafin vinna við fyrstu tvö húsin, hús nr. 8 og 10 en þau eru einmitt í eigu félagsins.

Myndin var tekin er tíðindamaður heimasíðunnar var staddur á fundi á Illugastöðum sl. föstudag.