Framkvæmdastjórn SGS með fund á Akureyri

Framvkæmdastjórn og starfsmenn SGS
Framvkæmdastjórn og starfsmenn SGS

Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambandsins er nú að funda í sal félagsins á Akureyri, en fyrr í dag fóru þau í heimsókn í Útgerðarfélag Akureyringa og fengu kynningu á fyrirtækinu. Á morgun mun stjórnin funda á Húsavík. Með í för eru tveir starfsmenn Starfsgreinasambandsins þau Drífa Snædal, framkvæmdastjóri SGS, og  Árni Steinar Stefánsson sérfræðingur.

 

Eftirfarandi sjö aðilar sitja í framkvæmdastjórn SGS.

Formaður

Björn Snæbjörnsson, Eining-Iðja

Varaformaður

Hjördís Þ. Sigurþórsdóttir, AFL Starfsgreinafélag

Meðstjórnendur

Aðalsteinn Á. Baldursson, Framsýn stéttarfélag

Halldóra Sveinsdóttir, Báran stéttarfélag

Kolbeinn Gunnarsson, Vlf. Hlíf

Sigurður A. Guðmundsson, Verkalýðsfélag Snæfellinga

Ragnar Ólason, Efling stéttarfélag