Stjórnir sjóðanna Landsmenntar, Ríkismenntar og Sveitamenntar samþykktu fyrr í desember að hækka hámark einstaklingsstyrkja úr kr. 100 þúsund í kr. 130 þúsund.
Þar sem samþykkt var að hækka um næstu áramót hámark einstaklingsstyrkja í kr. 130.000 hækkar einnig hámark á uppsöfnuðum rétti til styrks í kr. 390.000.
Hækkunin tekur gildi frá og með 1. janúar 2020 og gildir gagnvart því námi sem hefst frá og með þeim tíma.