Fræðsludagur félagsliða

Miðvikudaginn 22. nóvember nk. verður hinn árlegi fræðsludagur félagsliða haldinn á Grand Hótel Reykjavík. Dagskráin verður með fjölbreyttu sniði, en viðburðurinn er opinn félagsliðum um allt land óháð stéttarfélagi. Eining-Iðja mun að sjálfsögðu senda nokkra fulltrúa á þennan fræðsludag.

Nauðsynlegt er að skrá sig hjá Drífu Snædal (drifa@sgs.is) fyrir 15. nóvember. Félagsliðar um allt land eru hvattir til að nýta sér þetta tækifæri til að fræðast og ekki síst hitta aðra félagsliða og ræða sameiginleg málefni.

Dagskrá

Kl. 10:00 – 11:00              Hópavinna um stöðu félagsliða og framtíðarsýn

Kl. 11:30 – 12:00              Samantekt og umræður

Kl. 12:00 – 13:00              Hádegismatur

Kl. 13:00 – 14:00              Félagsliðar sem burðarstoð í velferðarkerfi framtíðarinnar

Kl. 14:00 – 14:40              Kynning á nýju framhaldsnámi félagsliða

Kl. 14:40 – 15:00              Kaffi

Kl. 15:00 – 15:45              Að njóta sín í starfi og koma í veg fyrir kulnun

Kl. 16:00                            Fundalok