Vert er að minna á að að sérstöku fræðsluátaki fræðslusjóðanna vegna Covid mun ljúka 1. júní nk., en í ljósi aðstæðna í íslensku samfélagi ákváðu stjórnir Landsmenntar, Ríkismenntar og Sveitamenntar að rýmka úthlutunarreglur einstaklingsstyrkja í ákveðinn tíma. Átakið tók gildi 15. mars 2020 og gildir það nú til 1. júní 2021, eftir nokkrar framlenginar. Átakið gildir gagnvart námi/námskeiðum sem haldin eru eða hefjast innan þessa sama tímaramma.
Frír aðgangur að námskeiðum
Fræðslusjóðirnir gerðu samninga við fræðsluaðila sem bjóða upp á vefnám/fjarnám þar sem fyrirtækjum og einstaklingum er boðin þátttaka í námi/námskeiðum þeim að kostnaðarlausu. Þetta gildir einnig um staðbundið nám þar sem því er við komið vegna aðstæðna. Þessir samningar gilda einnig tímabundið og gagnvart því námi/námskeiðum sem fræðsluaðilar bjóða upp á innan þessa tímaramma, það er frá 15. mars 2020 til og með 1. júní 2021.
Einstaklingar og fyrirtæki geta skráð sig hjá viðkomandi fræðsluaðilum sem sjóðurinn er með samninga við án þess að greiða. Gildir gagnvart námi/námskeiði eða áskrift sem kostar að hámarki kr. 30.000. Fræðsluaðilarnir senda reikninga beint á sjóðina. Námskeið þessara fræðsluaðila eru auglýst hverju sinni, bæði af sjóðunum og aðildarfélögum þeirra.
Breytingar á úthlutunarreglum sjóðanna eru eftirfarandi:
Hér má sjá lista yfir framboð á námi sem búið er að semja um
Landsmennt er fræðslusjóður Samtaka atvinnulífsins og verkafólks á landsbyggðinni, um er að ræða stéttarfélög innan Starfsgreinasambands Íslands (SGS). Ríkismennt er þróunar-og símenntunarsjóður starfsmanna ríkisins á landsbyggðinni innan aðildarfélaga SGS. Sveitamennt er starfsmenntunarsjóður starfsmanna sveitarfélaga á landsbyggðinni innan aðildarfélaga SGS.