Fræðsla á flokkstjóranámskeiðum

Myndin er tekin á námskeiðinu í SÍMEY þegar stóð yfir fræðsla í skyndihjálp.
Myndin er tekin á námskeiðinu í SÍMEY þegar stóð yfir fræðsla í skyndihjálp.

Vinnuskólar landsins eru um þessar mundir að fara í gang eftir vetrardvala. Á hverju vori halda mörg sveitarfélög námskeið fyrir flokkstjóra sem starfa í vinnuskólunum. Þessa vikuna stendur yfir í SÍMEY námskeið fyrir flokkstjóra vinnuskóla nokkurra sveitarfélaga á félagssvæðinu. Það er ýmislegt sem farið er yfir á þessu námskeiði, m.a. skyndihjálp, fagleg vinnubrögð við garðslátt, leiðtogaþjálfun og hagnýtar leiðir í vinnu með unglingum. Einnig er farið yfir réttindi og skyldur á vinnumarkaði og sá Eining-Iðja um þann hluta. Fjallabyggð hefur líka verið með námskeið fyrir sína flokkstjóra og fyrir starfsmenn í sumarafleysingu í áhaldahúsi sveitarfélagsins og hefur fengið félagið til að mæta þangað með fræðslu um réttindi og skyldur.

Í fyrradag var Rut, þjónustufulltrúi hjá félaginu, með fræðslu í SÍMEY og í gær var Anna varaformaður með fræðslu í Fjallabyggð. Í næstu viku er búið að fá félagið til að vera með kynningu fyrir alla sem eru í vinnuskólanum á Svalbarðseyri.