Fræðsla á flokkstjóranámskeiði

Þessa vikuna stendur yfir í SÍMEY námskeið fyrir flokkstjóra hjá vinnuskólum á félagssvæðinu í sumar. Það er ýmislegt sem farið er yfir á þessu námskeiði, m.a. skyndihjálp, fagleg vinnubrögð við garðslátt, leiðtogaþjálfun og hagnýtar leiðir í vinnu með unglingum.

Einnig er farið yfir réttindi og skyldur á vinnumarkaði og sá Þorsteinn E. Arnórsson, þjónustufulltrúi hjá Einingu-Iðju, um þann hluta námskeiðsins í gær.