Frábær mæting á bílstjórafund

Í gær stóð Iðnaðar- og tækjadeild félagsins fyrir fræðslufundi fyrir bílstjóra. Kjartan Þórðarson, sérfræðingur frá Samgöngustofu, fjallaði þar um fjölmargt er snýr að málefnum bílstjóra en þó aðallega um endurmenntun þeirra. Hann svaraði jafnóðum fjölmörgum fyrirspurnum fundarmanna, en frábær mæting var á fundinn sem fram fór í salnum á 4. hæð Alþýðuhússins á Akureyri og urðu fjörugar umræður um málefnið.

Fleiri myndir má sjá hér