Frábær ferð

Nú stendur yfir ferð félagsins til Austurríkis, en þar eru á ferð 53 félagsmenn og makar þeirra á aldrinum 39 til 85 ára. Fyrstu dagana var gist í Zell am See en í dag verður farið til Seefeld þar sem gist verður næstu daga. M.a. er búið að skoða Arnarhreiðrið, fara til Salzburg, farið á Kitzsteinhorn sem er í 3030 metra hæð, Virkjunarlón í rúmlega 2000 metra hæð í Kaprun skoðað og margt fleira.

Hér fyrir neðan má sjá nokkar myndir úr ferðinni, myndin verður stór ef þú smellir á hana.