Frábær dagsferð fyrir aldraða félagsmenn

Í gær, 21. júní, var farið í árlega dagsferð fyrir aldrað Einingar-Iðjufólk, en þá fóru um 50 félagsmenn og makar með í hringferð um Tröllaskaga. Ekið var af stað klukkan 9:00 frá Alþýðuhúsinu á Akureyri í sól og blíðu og var stefnan tekin á Fjallabyggð. Ákveðið var að beygja út af þjóðvegi 1 við Hlíðarbæ og aka „Skottið“ svokallaða.

Í Ólafsfirði var tekið stutt „sjoppustopp“ en svo var ekið til Siglufjarðar þar sem Síldarminjasafnið var skoðað. Að því loknu var snæddur mjög góður hádegisverður á Sigló hóteli.

Áfram var haldið og var næst stoppað á Hofsósi þar sem Vesturfarasetrið var heimsótt. Á leiðinni þangað kom smá bleyta að ofan en þurrt var er komið var á Hofsós, þó var óþarflega mikill hraði á logninu.

Hólar var næst á dagskrá þar sem Hóladómkirkja var skoðuð. Þar tók Gylfi Jónsson staðarhaldari á móti hópnum og stiklaði á stóru um sögu jarðarinnar og kirkjunnar.

Ekið var í gegnum Sauðárkrók og í Varmahlíð þar sem drukkið var síðdegiskaffi á Hótel Varmahlíð en að því loknu var ekið heim til Akureyrar á ný.

Leiðsögumaður dagsins, Bragi Guðmundsson, var alveg frábær en hann var uppfullur af margvíslegum og skemmtilegum fróðleik um það sem fyrir augu bar á leiðinni. Ársæll bílstjóri fékk líka gott lófaklapp í lok ferðar.

Frábær dagur með enn betra fólki. Takk fyrir samfylgdina.

Sjá myndir hér