Fosshótelmiðar - verð fyrir 2017 komið á síðuna

Á skrifstofum Einingar-Iðju geta félagsmen keypt niðurgreidda gistimiða á Fosshótel fyrir félagsmenn. Nú er búið að uppfæra upplýsingar um gistimiðana hér á heimasíðunni fyrir árið í ár. Verð miða er kr. 9.500 og gildir hann fyrir árið 2017.

Fosshótel bjóða upp á gistingu á 16 hótelum og er í boði fjölbreytt úrval af gistingu um allt land, ýmist sem sumarhótel eða heilsárshótel. Fosshótelin eru reyklaus hótel.

Bókanir skulu berast beint á viðkomandi hótel eða á söluskrifstofu Fosshótela í síma 530 9060. Athugið ekki er hægt að bóka í gegnum bókunarvél á heimasíðu ef greiða á með gistimiða. Ráðlagt er að bóka með fyrirvara,, en við pöntun þarf að koma fram að greitt verði með gistimiða.