Formannafundur SGS ályktar um nýtt fjárlagafrumvarp

Formannafundur Starfsgreinasambandsins mótmælir harðlega þeirri herferð sem ríkisstjórnin er í gegn atvinnulausum og öðru tekjulágu fólki og birtist í nýju fjárlagafrumvarpi. Skerðing á bótatíma atvinnulausra er afturhvarf til fortíðar. Með hækkun á matarskatti er verið að velta álögum frá tekjuhæsta fólkinu yfir á lágtekjufólk. Formenn og varaformenn aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins sem nú funda á Ísafirði munu berjast hart gegn öllum þeim áformum sem birtast í frumvarpinu og verða til þess að rýra enn afkomu almenns launafólks og sérstaklega þeirra tekjulægstu.

Ísafirði 9. september 2014