Formannafundur ASÍ á morgun

Kjarasamningarnir framundan verða helsta umfjöllunarefnið á formannafundi ASÍ sem fram fer í Rafiðnaðarskólanum á Stórhöfða á morgun, miðvikudaginn 30. október. Auk þess sem staðan í væntanlegum kjaraviðræðum verður vegin og metin verður fjallað um velferðakerfið á vinnumarkaði sem ASÍ hefur alla tíð lagt mikla áherslu á. Seturétt á fundinum hafa formenn allra aðildarfélaga ASÍ, formenn deilda innan aðildarfélaga og miðstjórnarmenn. Björn Snæbjörnsson, formaður félagsins, mun sitja fundinn fyrir hönf Einingar-Iðju

Formannafundur ASÍ 2013
Rafiðnaðarskólanum, Stórhöfða 27 (Grafarvogsmegin) 30. október 2013

09:30 Skráning og afhending fundargagna

10:00 Ávarp forseta ASÍ
Kynning á hagspá hagdeildar ASÍ

10:45 Kjaramálin – staða og horfur

12:00 Hádegishlé

13:00 Velferðarkerfið á vinnumarkaði:
Menntun – virkar vinnumarkaðsaðgerðir – starfsendurhæfing
Framsögur/innlegg:
Ingibjörg E. Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins
Runólfur Ágústsson, verkefnisstjóri „Liðsstyrks“
Vigdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri VIRK, starfsendurhæfingarsjóðs
Umræður
Afgreiðsla ályktunar

15:30 Önnur mál
Afgreiðsla ályktana

16:00 Áætluð fundarlok