Formaður félagsins var gestur í Landsbyggðum á N4

Björn Snæbjörnsson, formaður félagsins, var gestur Karls Eskils Pálssonar í þættinum Landsbyggðum á N4 í gær þar sem helstu viðfangsefni ársins voru rædd..
„Eitt stærsta viðfangsefni samfélagsins er að ná niður atvinnuleysinu, skjóta fleiri stoðum undir atvinnulífið og skapa þannig ný störf," sagði Björn m.a. og að það verði  að beita öllum ráðum til þess að halda verðbólgunni niðri og styrkja þá sem lægstar hafa tekjurnar.