Fleiri frambjóðendur í heimsókn

Nú eru aðeins örfáir dagar í kosningar til Alþingis og hafa frambjóðendur fjögurra flokka komið á skrifstofu félagsins á Akureyri, sest niður með starfsfólki og átt gott spjall yfir kaffibolla. Í morgun mættu þau Bjarkey Olsen, Jódís, Kári og Jana Salóme frá Vinstri grænum og sl. mánudag þau Eiríkur Björn, Sigríður og Guðbrandur frá Viðreisn.

Í síðustu viku komu þau Logi og Hilda Jana úr Samfylkingunni og Ingibjörg og Líneik úr Framsóknarflokknum. 

Þeir frambjóðendur sem gáfu sér tíma til að kíkja í heimsókn gáfu sér allir góðan tíma til að kynna sínar áherslur og heyra skoðanir starfsfólks stéttarfélaganna.