Fjórir fundir í næstu viku

Eining-Iðja mun halda fjóra almenna fundi á félagssvæðinu í næstu viku þar sem m.a. mun fara fram kosning á svæðisfulltrúum félagsins og varamönnum þeirra. Fundirnir verða túlkaðir á pólsku. Félagar, fjölmennum!

Mánudagur 28. janúar

  • Hrísey: Á veitingastaðnum Verbúðin 66 kl. 19:30
  • Dalvík: Í safnaðarheimili Dalvíkurkirkju kl. 19:30
  • Um sameiginlegan fund er að ræða, staðirnir tveir verða tengdir í gegnum netið. 

Þriðjudagur 29. janúar

  • Fjallabyggð: Sameiginlegur fundur fyrir Siglfirðinga og Ólafsfirðinga kl. 19:30 á skrifstofu félagsins Eyrargötu 24b.

Miðvikudagur 30. janúar

  • Grenivík: Á veitingastaðnum Kontórnum kl. 19:30  

Dagskrá:

  1. Kosning á svæðisfulltrúa og varamanni.
  2. Staða kjaramála.
  3. Önnur mál.