Eining-Iðja mun halda fjóra fundi á félagssvæðinu í byrjun febrúar. M.a verður farið yfir stöðuna í kjaramálum og fjallað verður um helstu niðurstöður úr kjarakönnun félagsins. Fundirnir verða túlkaðir á pólsku. Félagar, fjölmennum!
- Mánudagur 5. febrúar
- Hrísey: Á veitingastaðnum Verbúðin 66 kl. 17:00
- Dalvík: Safnaðarheimili Dalvíkurkirkju kl. 20:00
- Þriðjudagur 6. febrúar
- Fjallabyggð: Sameiginlegur fundur fyrir Siglfirðinga og Ólafsfirðinga kl. 20:00 á skrifstofu félagsins Eyrargötu 24b.
- Miðvikudagur 7. febrúar
- Grenivík: Á veitingastaðnum Kontórnum kl. 20:00
Dagskrá
- Staðan í kjaramálum
- Könnun félagsins - helstu niðurstöður
- Önnur mál